The great family
Heimsóknir
Í dag:  58  Alls: 82532
07.02.2010 23:08:54 / Gústi

Þá er maður orðinn fertugur :-)

Já ekki annað hægt að segjaa en að þetta sé búin að  vera góð helgi og mikið um að vera hjá okkur, og við höfum haft góða gesti hjá okkur. Við erum búin að halda veislu og það er búið að vera mikið fjör. Svo eru Bára Björg,Óli Jói og Þorlákur Ari búin að vera hér í 6 daga og eru að fara á morgun. Það verður tómt kotið en við erum vön því, og það tekur smá tíma að venjast því. Skólinn er byrjaður að rúlla og þá er kominn tími til að taka til hendinni við námið, en ég er ekki búinn að vera miki að læra heima síðustu daga.
Svo er bara að vona að vorið fari að koma og við þurfum að fara að kanna hverjir ætla að koma til okkar í sumar og skipuleggja það. En gott í bili.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2010 20:16:08 / Gústi

Jú við erum á lífi og allt að gerast hjá okkur !

Við erum flutt í nýja húsnæðið okkar og það er allt á rúfi og stúfi, vegna þess að við erum að fá nýtt eldhús og það er fínt, byrjað að rífa það klukkan 7 í morgun og svo er komin ný innrétting sem sett verður upp á næstu dögum. En þetta er búin að vera mikil törn og mikið búið að breytast í húsinu. Svo er það bara að klára að flytja dótið á morgun og skila af sér gömlu íbúðinni.
Svo er að byrja þriðja önnin hjá mér á morgun og það er fínt,ekki mikil kennsla en það er smá áhverjum degi. Verð bara duglegur að læra í skólanum fyrir og eftir skóla. Þarf að fara í endurtökupróf í stærðfræðinni á föstudaginn og vona að það gangi vel, hélt að ég væri kominn með þetta en það reyndist ekki svo. Það er bara svoleiðis og ekkert við því að gera. Verð bara að leggja smá vinnu í að klára þetta og halda svo áfram ótrauður.
Við erum að fara með Ástrósu á barnaspítalann á morgun vegna asmanns og það er fínt, Jette vill láta fylgjast vel með þeim systkinum og það er alveg frábært. Svo er von á gestum til okkar í næstu viku og það verður rosalega gaman.
Látum þetta gott heita í bili.
Maestro

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 22:04:20 / Gústi

Já já og sei sei

Hér er allt að gerast, við fjölskyldan  erum að fara að flytja í stærra húsnæði. En við ætlum að reyna að byrja að mála á morgun og sjá til hvenær hægt er að byrja á að smíða veggina. Allir eru kátir og hressir og ég er að verða búinn í prófum og þá er aðeins ein önn eftir. Vonandi fara  prófin vel hjá mér og þá erum við komin með lán og lífið verður aðeins betra, en það er bara gott ef að það gengur eftir. Ég er búinn að vera að vinna bæði hér og í Köben og það er bara gott mál. Svo er að vona að við getum fengið Þorlák til okkar í stutta heimsókn í febrúar, það verður bara gaman þá. Hann hefur ekki komið síðan um síðustu jól og okkur hlakkar mikið til að hitta hann. Andri er að spá í að koma líka þegar ég á afmæli, svo er Óli Jói að koma líka. Það verður bara kátt á hjalla þá, það er öruggt. Nú verður nóg pláss fyrir gesti hjá okkur og pláss fyrir alla sem vilja koma. En Ágúst Þór kemur vonandi í sumar og verður lengi ef að allt gengur eftir, hann vill koma eftir N1 mótið og vera þangað til að skólinn byrjar og vonum við að það gangi eftir, verður allavega í lagi að okkar leiti. En það á eftir að ræða þessa hluti alla. Svo væri nú gaman ef að ömmur og afar gætu komið til okkar fljótlega, það er alltaf gaman að fá þau í heimsókn. Svo ætlum við að reyna að koma á klakann þegar skírt verður hjá Ingvari og Írisi. Litla snúlla þarf að fa´nafn og ekki viljum við missa af því. 
Gott í bili
Maestro

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2009 08:11:27 / Gústi

Greiniliega stutt í jólin!

Já það er öruggt, vegna þess að hér var vaknað kl 6 :30 og kíkt í skóinn, og kannað með sjónvarpið, en hann Elmar vinur Stefáns var í gistingu. Það er bara fjör hjá þeim núna og eru að leika sér að teikna jólasveina og svoleiðis. Þær mæðgur eru sofandi ennþá og við strákarnir komnir á fætur. En við erum kát og hress og nú er að styttast í jólin, ég fer í skólann á morgun og svo fer ég til KBH að vinna smá, kem til baka aftur um nóttina eða á þriðjudagsmorgun, kemur í ljós, fer eftir því hvað ég verð lengi að vinna í køben. Svo er komið jólafrí í skólanum og þá kemur í ljós hvort að það er jólatörn hjá KTT. Ef að það er þá vinnu maður hana og lærir í kemi og stærðfræðinni. Svo er Enska líka sem að ég þarf að lesa fyrir, en það er nóg að gera framundan. Svo er spurning hvað nýtt ár ber í skauti sér. En látum þetta gott heita í bili.
Maestro

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2009 22:10:36 / Gústi

Allt á kafi í snjó hér hjá okkur:)

Og ekki leiðist okkur það, við lentum í svaka umferðarteppu á leið heim úr skólanum ég og Ívar og vorum tæpa 2 klukkutíma á leiðinni, en við ætluðum að fara á hraðbrautina til til að losna við umferð eins og stundum er hægt, en þar var allt stopp og við fórum til baka niður í skóla og þaðan heim aftur og tók það þennan tíma. En við erum hress og kát, ég átti að fara til Køben að vinna en það datt upp fyrir og kannski verður það á milli jóla og nýárs, hver veit, en það hefði verið fínt að fá þennan aur. Sótti bara um vinnu í Lindø í staðinn og vona það besta. Erum að fara að klára að versla gjafir sem eiga að fara til Íslands með skipinu á föstudaginn eftir skóla hjá mér á morgun og verður það fínt, svo er bara að fara til Århus á föstudaginn og svo geta jólin komið í friði, eða þannig. En ég sat og var að reyna að skilja þetta kemi dót sem að ég er að reyna við í þriðja skipti og allt er þegar þrennt er. Þetta er að rifjast upp og svo er að reikna og reikna gömul próf á fullu fram að prófi. Svo er líka stærðfræðina aðeins að síast inn og þetta kemur allt saman, verður gott þegar þetta er búið. 
Maestro

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2009 21:41:44 / Gústi

Hvað er til ráða !

Já ég segi ekki annað en það, hvað er til ráða. Við feðgin erum lasin núna og það er ekki alveg það sem við þurfum á að halda, ætla að reyna að vinn um helgina og svo eru prófin að byrja, fer  í 1 á föstudaginn.
En þetta hlýtur að vera búið núna eða það vona ég allavega. Annars er allt gott, erum að bíða eftir að fá íbúðina og símtal um að velja eldhúsinnréttingu, svo þarf að kaupa efni í vegginn og allt sem að því fylgir, smíða, mála og svo framvegis, en það verður gert eftir prófin, þau hafa forgang og vona ég að það gangi allt eins og í sögu, þarf að fara að læra og læra, er allt of latur við það, en veitir ekki af því. En það þarf aga á sig til að leggjast í bækurnar. Hann hlýtur að koma bráðum. Dana er að fara að skrá sig sem vikar og vonandi gegnur það vel. Það er sagt að það sé góð leið til að komast í fasta vinnu, krossum putta með það. Annars erum við kát og hress og ánægð með lífið hér í véum Óðins. Segjum bara jeg har det bra og svo videre
Maestro

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2009 21:01:39 / Gústi

Hæ hæ og hó hó

Hér er allt í kyrrð og ró nema ég þó en við erum kát og hress hér í Danmörkinni og allir búnir að ná heilsu. Hér er að styttast í jólaundirbúning og það fer í gang þegar ég gef mér tíma til að ná í jólaskrautið á loftið.
Það er julehygge á leiskólanum hjá krökkunum á sunnudaginn og ég fer ef að ég er ekki að vinna ,en nú þarf að vinna svo að jólin geti komið eða þannig, en við erum ekki farin að versla jólagjafir en það kemur að því. Ég fer ekki í jólafrí fyrr en á þorláksmessu og er búinn 2. jan. Stutt frí það. Svo eru prófin strax eftir áramótin, 6, 7. 8 jan og svo eitt 14. eða 15 jan. Og þá er bar ein önn eftir í aðgangskursus. Þá er maður á leið í tæknifræðina og kannski verkfræðina, hver veit. En það kemur í ljós þegar líður á. Er að hugsa um að læra Véltæknifræði eða kannski bara rafmagnstæknifræði. Nema að ég fari í framleiðslutæknifræði, hver veit. Er ekki alveg búinn að ákveða það. En Dana er á leið í skóla eins og staðan er núna, en það er jafnvel möguleiki á að hún fái vinnu sem stuðningsulltrúi og það er bara betra sennilega. En þetta skýrist allt fljótlega.
Biðjum að heilsa að sinni.
Maestro

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2009 19:30:55 / Gústi

Jæja

Þá er komið að smá pistli af okkur hér á pestarstöðum, en við erum nú að verða nokkuð góð eftir langa og skemmtilega veikindalotu sem að endaði vel, eins og þær allar. En það er fleira jákvætt að gerast, en við erum komin með bíl og svo erum við að fá stærra húsnæði, en við erum að flytja í Østerdalen 19 CD eftir áramót í 113 fermetra hús.
Þá erum við komin á eina hæð, með gestaherbergi og aðstöðu til að læra sem er bara snilld. Ég þarf að fara að vera duglegur að læra í næsta mánuði til að vera vel undirbúinn fyrir prófin, fer í kemi 6. jan, ensku 7. jan, stærðfræði 8.jan og munnlegt próf í dönsku 13 eða 14 jan. Tek skriflegt enskupróf 11 desember svo að það er nóg að gera framundan, og Dana er að fara í viðtal vegna skólans sem hún sótti um í þann 26 nóv. Vonandi verður þetta veikindavesen búið þá. Við erum kát og hress og allt fott að frétta þrátt fyrir veikindin og bara gaman að vera til. Annað er ekki hægt þegar hlutirnir eru að ganga vel og lífið er eins og það á að vera.
Já og það eru komnar 2 annir hjá mér og mér finnst eins og að ég hafi verið að byrja í gær, næstum því. En þetta er bara gaman og líkar mér þessi ákvörðun mín að setjast á skólabekk vel. Og ekki verra að Dana er að fara af stað líka.
Látum heyra frá okkur fljótlega.
Maestro.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 07:35:36 / Gústi

Lungebetændelse er það heillin

Já það á ekki af þessari fjölskyldu að ganga, en nú er búið að greina alla nema mig með lungnabólgu og það er engin smá lungnabólga. Allir komnir á penisilin og allt, og svo eru þau að fara í H1N1 sprautuna í dag, Ástrós fer líka. En vonandi fer þetta batnandi, en krakkarnir eru að verða hitalaus og minnkar hóstinn með hverjum deginum svo að það er gott, en mamman er mikið lasin, svaf ekki mikið í nótt vegna hósta og það eru engin smá óhljóð í lungunum á henni. Meira að segja ég heyri sönginn í lungunum á henni þegar ég ligg á koddanum við hliðina á henni. Hún er alveg bakk núna og ég heima. En annars er allt gott af okkur að frétta og við erum kát og ánægð með lífið. Styttist í að mamman fái svar um skólann sem að hún ætlar í. En það verður í síðasta lagi 20. nóv. og hlakkar okkur til að vta niðurstöðuna. Hún fær laun í skólanum og það verður mikill munur að fá fastar tekjur. Svo er nú spurning hvað við gerum þegar (og ef ) prófin eru búin og við fáum námslánin. Þá er hægt að gera eitthvað sniðugt sér til gamans. Nú, svo eru það góðu fréttirnar, en við erum búin að fá stærra húsnæði til að taka á móti gestum og það er bara fínt. Flytjum í janúar febrúar ef að allt gengur eftir, en við þurfum að greiða innáborgun og mánaðarleigu fyrirfram og ætlum að fara að skoða húsið sem fyrst, til þess að geta beðið um að láta laga það sem okkur finnst að. Látum vita þegar við erum með meiri fréttir. Látum þetta gott heita í bili.
Maestro

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2009 21:15:33 / Gústi

Halló

Þá eru sagðar fréttir úr Vesterdalen, en allt er gott að frétta og fór fjölskyldan í mjög skemmtilega fjölskylduferð á læknavaktina á laugardagskvöldið og var það mjög gaman eða þannig. En við vorum og erum öll búin að vera lasin og það er bara svoleiðis áfram. Stefán Páll er vonandi að hrista af sér sína pest, Ástrós Þóra að byrja með sína, ég er eins og drusla og Dana með í eyranu. En við erum kát og hress og förum nú vonandi að geta gert eitthvað saman, og vonandi að fá bílinn sem að við erum að fara að kaupa. Það tafðist aðeins vegna þess að hann fékk ekki fulla skoðun en það er gott fyrir okkur. Búið að gera mikið við hann og núna smá í viðbót svo að við fáum fínan bíl, allavega talsvet miklið endurnýjaðann og það er gott mál. Þá fer maður að geta farið meira í heimsóknir og svoleiðis. En það er nú bara þannig að maður er ekkert rosalega duglegur að fara með strætó í heimsóknir, þegar það tekur 1klst. að fara á milli og ekki hjólar maður mikið með börnin eins og þau eru búin að vera og líka orðin of stór í vagninn, þ.e.a.s geta ekki verið bæði lengur. Stefán Páll er svo stór orðinn og þau saman of þung. En þetta er allt í sóma og kemur til með að reddast, ekki spurning um það. Það er nú bara einu sinni þannig að ef að maður ætlar að gera eitthvað þá er það hægt. Dana er að bíða eftir svari frá skólanum sem að hún sótti um í og það verður í síðasta lagi 20. nóv.
Ef að það gengur upp þá erum við komin með fína innkomu  á heimilið og fasta, ekki slæmt það, en við höfum haft það gott, vegna þess að ég hef fengið næga vinnu til að við getum rekið heimilið, og það með smá afgangi stundum, bara æði. Vorum í viðtali hjá bankanum og þegar hann sá (maðurinn sem að við ræddum við) tekjurnar sagði hann, er þetta ekki erfitt og við sögðum, nei þetta er fínt. Hann var ekki alveg að skilja það held ég. En svona erum við nú bara og líkar það vel. Munið að skrifa komment eða í gestabókina svo að við vitum hver er að kíkja.
Hilsen
Maestro.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2009 10:42:50 / Gústi

Já, það er nú svo!

Við erum hér heima feðgarnir, lasnir og reynum að skemmta okkur vel. Það gengur ágætlaega og við erum búnir að horfa á 2  myndir, borða hádegismat og svo hlusta á music á sjónvarpsflakkaranum okkar, það er bara gaman. En við ætlum að fara að byrja að mála systu herbergi og gera það fínt. En annars er allt gott, erum að eignast bíl á næstu dögum vonandi og þá verður mikil breyting og við getum farið að fara i bíltúra og skoða nágrenni okkar og kannski aðeins fjær líka. Það opnast möguleikar á svo mörgu og svo er það nauðsynlegt að vera með bílinn, en það er eitthvað sem að við komumst að þegar Stefán datt og braut viðbeinið í vor og líka þegar hann datt niður úr trénu og fékk gat á vörina. Við vorum bara rosalega heppin að vera nýbúinn að hitta Ívar og Hröbbu þegar hann braut viðbeinið, því að við vorum nýkomin í Bilka að versla og vorum hjólandi.
En þetta skýrist á næstu dögum og við vonum að þetta gangi upp. Dana er búin að sækja um í sosu, sem er social og sundhedsskolen og ef að hún kemst inn þá byrjar hún í janúar. Pedagog asisstent er málið, en það er ekki neina vinnu að hafa og hún fær allavega laun á meðan hún er í þessu námi. Það er gott að vita til þess að það eru að koma meiri tekjur, ef að hún kemst inn og þá fastar í hendi, en ekki eins og núna, veltur á vinnu hjá mér. Við höfum verið mjög heppin með hvað ég er búinn að fá mikla vinnu til að við getum framfleytt okkur. En það er að breytast og er bara gott. Látum vita af okkur fljótlega og segjum að góðum sið
Hilsen
Maestro

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2009 09:40:32 / Dana

Allt að gerast hér á bæ

Jæja gott fólk,
Krakkarnir eru búin að vera veik og systkinin greinilega mjög samrýmd, því Andri Már, Þorlákur Ari, Stefán Páll og Ástrós Þóra en sem betur fer er brósi besta skinn ekki veikur þá væri nú bara spurning um að leigja spítala fyrir þau.
Þau eru ekki með sömu flensuna samt og er það ótrúlega fyndið, þau eru í sama húsinu bara á sinn hvorri deildinni, en Stefán Páll fékk leiðindar höfuðkvalir með tilheyrandi skemmtileg heitum en hún skottan er með hita og ógeðslega ljótann hósta.

Ég fékk bréf frá landspítalanum í gær og fer til doksa strax á mánudagsmorguninn og þá fer eitthvað að gerast, er búin að vera mjög slæm núna í langan tíma og bakið að hrella mig ofan á þetta allt saman.
Gústinn minn er alltaf jafn duglegur í skólanum og var að skila fyrstu ritgerðinni sinni i gær svakalega stolt af honum.
Erum að fá gesti á eftir og er mikil eftirvænting en Heiðar, Randi og Jóhannes Ari eru að koma frá Esbjerg en þau komu barasta siglandi til okkar með búslóðina sína og eru þau búin að fá tilboð í íbúð og vonum við að það gangi eftir þeirra vegna.

en annars eru allir sprækir hér á bæ, þrátt fyrir flensuskítinn.
sendu bata kveðjur til  Kollu sem er  á Akureyri stálslegin ;) gahahahah

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2009 12:08:45 / Gústi

Lífið gengur sinn vanagang hér i DK

Já það má nú segja að það sé þannig, allir hressir, mishressir þó og allt i stakasta lagi. Stefán Páll er búinn að fara á 2 fótboltaæfingar og líkar vel, vildi ekki vera í fimleikum vegna hávaða, er svo mikil mús.
En ég er allur að koma til eftir boltann á Klakamótinu og það er að byrja að vaxa hæll aftur og táin er að springa. En þetta er þess virði og var bara gaman að vera með. Komst að því að ég er í fínu formi og átti ekki í vandræðum með þetta.
Dana er aðeins hressari og bíður eftir svari frá lækninum á Íslandi til að geta fengið gögn um sig frá LSH, sem geta ekki gefið henni það sem hana vantar! skil það ekki en svon er það bara.
Ástrós er bara æði, hermir eftir öllu og argar og gargar ef að ekki er gert eins og hún vil(eins og mamman) og þarf maður að tala dönsku við þau bæði stundum til að þau hlusti.
Gott í bili.
Maestro

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2009 15:14:08 / Gústi

Gleði gleði gleði

Já hvað er hægt að segja annað en það.
Við erum komin með tölvu og förum að blogga meira og leyfa ykkur að fylgjast með okkur og ævintýrum okkar.
En hér eru allir kátir og hressir og mikið búið að bralla, en það verður upplýst smám saman.
En látum þetta gott heita i bili og segjum astalavista.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 19:04:38 / Gústi

Jæja þá er maður kominn á netið :)

Jújú, tæknin að stríða manni eða þanng sko, við erum búin að vera í vandræðum með tölvuna. Inntakið fyrir rafmagnið er ónýtt og því ekki hægt að nota tölvuna með snúru og ekki hægt að hlaða batterýið nema að fara með það í heimsókn til Ella og Margrétar. Það er því alveg klárt að það þarf að kaupa nýja tölvu, reikna með að það sé betra en að láta laga, vegna kostnaðar.
Annars er allt gott af okkur, Dana orðin 30 og við búin að vera með gesti hjá okkur og fengum óvænta gesti í kaffi þann 2 ágúst, það voru þau Ingvar og Inga Lára og segjum við takk fyrir skemmtilega heimsókn og óvænta. Bára og Stefán búin að vera hjá okkur og fengu ekki mikinn frið fyrir barnabörnunum og voru alltaf með þeim úti að leika. Svo er Gunnar Páll hjá okkur núna og verður í nokkra daga í viðbót, dvo koma mamma og pabbi til okkar þann 19 ágúst og verða hjá okkur til 24 ágúst og þá fara þau heim með Ágúst Þór með sér. Það verður erfitt þegar hann fer og vonum við að hann komi fljótt aftur. Andri er veikur og það er ekki gott, en hann er búinn að vera að vinna á fullu og fór svo til eyja á þjóðhátið. Það var mikið fjör hjá honum. Þorlákur er á fullu í boltanum og gegnur bara vel, held að hann sé byrjaður að vinna á KFC en er ekki alveg viss, hann ætlaði að fara að vinna með systu.Stefán Páll og Ástrós Þóra voru að byrja í skólanum eftir sumarferí og það gekk allt vel, Stefán var farinn að bíða eftir því og Ástrós er útisjúk svo að það er gott að hún er komin í skólann.  Svo eru Heiðar og Randí að flytja hingað til okkar og gæti verið að þau yrðu hér hjá okkur ef að þau verða ekki búin að fá íbúð. Þau koma út í lok september.
En ég er að undirbúa mig fyrir endurtöku í efnafræði og það er á fimmtudaginn, vona að það gangi upp. Læt þetta duga í bili.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35
Dagsetning
9. febrúar 2010
Klukkan
Talning
Eftir 113 daga
Búinn með AK(Adgangskursus