The great family
Heimsóknir
Í dag:  62  Alls: 84798
10.11.2009 07:35:36 / Gústi

Lungebetændelse er það heillin

Já það á ekki af þessari fjölskyldu að ganga, en nú er búið að greina alla nema mig með lungnabólgu og það er engin smá lungnabólga. Allir komnir á penisilin og allt, og svo eru þau að fara í H1N1 sprautuna í dag, Ástrós fer líka. En vonandi fer þetta batnandi, en krakkarnir eru að verða hitalaus og minnkar hóstinn með hverjum deginum svo að það er gott, en mamman er mikið lasin, svaf ekki mikið í nótt vegna hósta og það eru engin smá óhljóð í lungunum á henni. Meira að segja ég heyri sönginn í lungunum á henni þegar ég ligg á koddanum við hliðina á henni. Hún er alveg bakk núna og ég heima. En annars er allt gott af okkur að frétta og við erum kát og ánægð með lífið. Styttist í að mamman fái svar um skólann sem að hún ætlar í. En það verður í síðasta lagi 20. nóv. og hlakkar okkur til að vta niðurstöðuna. Hún fær laun í skólanum og það verður mikill munur að fá fastar tekjur. Svo er nú spurning hvað við gerum þegar (og ef ) prófin eru búin og við fáum námslánin. Þá er hægt að gera eitthvað sniðugt sér til gamans. Nú, svo eru það góðu fréttirnar, en við erum búin að fá stærra húsnæði til að taka á móti gestum og það er bara fínt. Flytjum í janúar febrúar ef að allt gengur eftir, en við þurfum að greiða innáborgun og mánaðarleigu fyrirfram og ætlum að fara að skoða húsið sem fyrst, til þess að geta beðið um að láta laga það sem okkur finnst að. Látum vita þegar við erum með meiri fréttir. Látum þetta gott heita í bili.
Maestro
Ingunn Þorláksdóttir skrifaði
Ja hér það er heldur betur ástand á bænum en við sendum batakveðjur til allra og vonum að allir fari nú að ná sér af þessum veikindum. Flott að heyra með húsið.

Kv. Ingunn og Co

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan
Talning
Eftir 73 daga
Búinn með AK(Adgangskursus